Tilboð!

Hljóðalestin með verkefnabók – Foreldrabók

Original price was: 5.900 kr..Current price is: 5.000 kr..

Hjálpaðu barninu þínu að undirbúa réttan framburð hljóða, að ríma og undirbúa lestrarfærnina sem mikilvægt er að undirbúa löngu áður en lestrarferlið sjálft hefst þegar barnið byrjar í skóla. Í Hljóðalestinni er aukin áhersla á hljóðgreiningu, rím og hljóðkerfisþætti og aukið við orðaforða og málskilning í útskýringum orða. Bókin er því góður grunnur að lestrarnámi og réttri stafsetningu.Skoðaðu ábendingar á Youtube rásinni okkar með leik og þjálfun

11 eintök til

SKU: 9789935912909 Flokkur:

Lýsing





Hljóðalestin er sjálfstætt framhald fyrra námsefnis og tekur á flestum þeim hljóðapörum sem íslensk börn víxla í framburði. Hver kannast t.d. ekki við að börn segi fak í stað þak? eða dala í stað tala?
Það er unnið með hljóðavíxlin á skemmtilegan hátt í rímorðum svo börnin uppgötva að ef þau segja rangt hljóð í stað rétta hljóðsins þá þýða orðið eitthvað annað. Orðin eru jafnframt sett í setningar til að draga fram merkingu orðanna og setja þau í rétta beygingarmynd.

Í Hljóðalestinni er aukin áhersla á hljóðgreiningu, rím og hljóðkerfisþætti og aukið við orðaforða og málskilning í útskýringum orða. Bókin er því góður grunnur að lestrarnámi og réttri stafsetningu.
Verkefnabók fylgir með skemmtilegum æfingum sem börnin geta unnið með Hljóðalestinni.
Lagt er kapp á að nýta þekkingu og reynslu fagaðila á þessu sviði og gera efnið aðgengilegt fyrir öll börn.
Fyrstu prófanir foreldra og kennara með efnið sýna mjög góðar framfarir í málhljóðagreiningu, rími og stafsetningu.

Halla Sólveig Þorgeirsdóttir teiknar líflegar og skemmtilegar myndir sem henta breiðum aldurshópi. Þá fylgja grunnmyndir Búa Kristjánssonar í táknmyndum hljóðanna.

Aldur: 4 – 12 ára +

Meira:

Bókin er með gormum undir kili. Alls 48 innsíður á 250 gr. UPM pappír og kápa er 350 gr. UPM pappír. Bókin er með sérstakri lakkhúð til að þola álag lítilla fingra sem skoða aftur og aftur!
Prentun: Ísafoldarprentsmiðja 2013
Stuðningur: Barnavinafélagið Sumargjöf

Auka upplýsingar

Weight 0,490 kg
Dimensions 30 × 22,5 × 0,8 cm