Fjöldi fagaðila af öllu landinu sótti réttindanámskeið í notkun Íslenska málhljóðamælisins, skimunartæki fyrir framburð og hljóðkerfisvitund 30. janúar 2026. Ítarleg fræðsla var veitt um málhljóðaraskanir og framburðarerfiðleika af ýmsum toga og ráðleggingar veittar um markviss inngrip sem fyrstu skref. Námskeiðið og efnistök þess hafa hlotið einróma lof hjá þátttakendum sem greina frá því að ÍM námskeiðið hafi nýst þeim vel í lífi og í starfi skóla. Í framhaldi af námskeiðsdegi taka við skimanir í heimabyggð, eftirfylgni, ráðgjöf, endurgjöf og aðstoð talmeinafræðings í allt að 6 mánuði eftir að námskeiði lýkur eða þar til skilyrðum til réttinda er fullnægt. Bryndís Guðmundsdóttir talmeinafræðingur og kennari hefur umsjón með námskeiðinu og allri eftirfylgni. Hún hefur áralanga reynslu í starfi með börnum og fullorðnum með erfiðleika í máli og tali. Næsta námskeið verður haldið haustið 2026. Við skráum á biðlista á netfangið laerumogleikum@gmail.com
