Hljóðalestin verkefnabók til útprentunar

Free!

Verkefnabókina sem fylgir Hljóðalestinni (grænu bókinni) má prenta út hér og vinna samhliða æfingum aftast í bókinni.

Hljóðalestin er sjálfstætt framhald fyrra námsefnis og tekur á flestum þeim hljóðapörum sem íslensk börn víxla í framburði. Hver kannast t.d. ekki við að börn segi fak í stað þak? eða dala í stað tala?
Það er unnið með hljóðavíxlin á skemmtilegan hátt í rímorðum svo börnin uppgötva að ef þau segja rangt hljóð í stað rétta hljóðsins þá þýða orðið eitthvað annað. Orðin eru jafnframt sett í setningar til að draga fram merkingu orðanna og setja þau í rétta beygingarmynd.

Í Hljóðalestinni er aukin áhersla á hljóðgreiningu, rím og hljóðkerfisþætti og aukið við orðaforða og málskilning í útskýringum orða. Bókin er því góður grunnur að lestrarnámi og réttri stafsetningu.
Verkefnabókin, sem hér er til útprentunar, fylgir með skemmtilegum æfingum sem börnin geta unnið með Hljóðalestinni.
Lagt er kapp á að nýta þekkingu og reynslu fagaðila á þessu sviði og gera efnið aðgengilegt fyrir öll börn.
Fyrstu prófanir foreldra og kennara með efnið sýna mjög góðar framfarir í málhljóðagreiningu, rími og stafsetningu.

Hljóðalestin er stærri en fyrri bækur (48 bls)
Halla Sólveig Þorgeirsdóttir teiknar líflegar og skemmtilegar myndir sem henta breiðum aldurshópi. Þá fylgja grunnmyndir Búa Kristjánssonar í táknmyndum hljóðanna.

Niðurhala Verkefnabók