Lærum og leikum með hljóðin

Smáforritið er ætlað öllum barnafjölskyldum og fagfólki sem vilja veita börnum forskot á hljóðmyndun og undirbúa þau fyrir lestur. Tilvalið fyrir fjölskyldur af erlendum uppruna til að æfa og læra íslensku hljóðin. Ný rannsókn sýnir marktækan mun á árangri nemenda í 1. bekk í hljóðkerfisvitund og læsi þegar skipulega var unnið eftir aðferðafræði Lærum og leikum með hljóðin. Niðurstöður sýndu mun betri framfarir hjá nemendunum þegar þeir voru bornir saman við jafnaldra sína í þremur öðrum skólum sem fóru í gegnum aðrar hefðbundnar lestrarkennsluaðferðir. (Gudmundsdottir. 2014)

Smáforritið tekur mið af því í hvaða röð íslensk börn tileinka sér talhljóðin í máltökunni og hvernig auðveldast er að kenna hljóðin. Byrja má skipulega á auðveldari hljóðum sem koma fyrir hjá mjög ungum börnum og halda áfram yfir í þau hljóð sem erfiðara er að segja eða velja það hljóð sem æfa þarf sérstaklega hverju sinni.

Hægt er að hlaða niður  fríum hluta úr smáforritinu öllu =  D hljóðið með spætunni sem goggar í tré. En við bendum á að ef þú ætlar að kaupa smáforritið með öllum hljóðunum velur þú Lærum og leikum með hljóðin – ALLT. Auðveldar allar seinni uppfærslur og er mun ódýrara þegar tilboð er í gangi.

 

Versla smáforritið í iTunes Store

Product Description

Öll íslensku málhljóðin eru kennd á lifandi og skemmtilegan hátt með fyrirmynd fyrir hvert og eitt hljóð. Heiti bókstafanna og hljóð þeirra eru kennd með íslenska fingrastafrófinu um leið og lestrarferlið er undirbúið. Á sama tíma er réttur framburður hljóða kenndur. Aðferðin byggir á áratuga reynslu talmeinafræðings með áherslu á að veita aðgengilega og faglega leiðsögn til foreldra og skóla.

Smáforritið er ætlað öllum barnafjölskyldum og fagfólki sem vilja veita börnum forskot á hljóðmyndun og undirbúa þau fyrir lestur. Tilvalið fyrir fjölskyldur af erlendum uppruna til að æfa og læra íslensku hljóðin. Ný rannsókn sýnir marktækan mun á árangri nemenda í 1. bekk í hljóðkerfisvitund og læsi þegar skipulega var unnið eftir aðferðafræði Lærum og leikum með hljóðin. Niðurstöður sýndu mun betri framfarir hjá nemendunum þegar þeir voru bornir saman við jafnaldra sína í þremur öðrum skólum sem fóru í gegnum aðrar hefðbundnar lestrarkennsluaðferðir. (Gudmundsdottir. 2014)

Smáforritið tekur mið af því í hvaða röð íslensk börn tileinka sér talhljóðin í máltökunni og hvernig auðveldast er að kenna hljóðin. Byrja má skipulega á auðveldari hljóðum sem koma fyrir hjá mjög ungum börnum og halda áfram yfir í þau hljóð sem erfiðara er að segja eða velja það hljóð sem æfa þarf sérstaklega hverju sinni.

Lærum og leikum með hljóðin er notað víða í leik- og grunnskólum á Íslandi og er sýnt í barnaefni Stöðvar 2.
Efnistök forritsins byggja á samnefndum bókum og námsefni Bryndísar Guðmundsdóttur talmeinafræðings.

Lærum og leikum með hljóðin inniheldur:
– Talsetning/söngur Felix Bergsson og Védís Hervör Árnadóttir
– Íslenskar teikningar Búa Kristjánssonar og Höllu Sólveigar Þorgeirsdóttur
– 20 samhljóð í íslensku kynnt með táknmynd fyrir hljóðið
– Sérhljóð í íslensku kynnt sérstaklega
– Röð samhljóða fylgir sömu röð og íslensk börn tileinka sér talhljóðin í máltökunni
– Hægt er að velja í aðalvalmynd hvaða hljóð er valið hverju sinni ef ekki er stuðst við erfiðleikaröðina
– Hægt er að fá lýsingu á talfærastöðu fyrir hvert hljóð
– Öll hljóðin eru æfð í hljóðaleik með hljóðakeðjum; samhljóð með sérhljóði til að tryggja að barnið nái réttu hljóði
– Hljóðin æfð í framstöðu orða nema þau hljóð sem koma eingöngu fyrir í miðju og aftast í orðum
– Ð, NG og ,,mjúka” G, eru æfð aftast og í miðju orða
– R býður upp á meiri aðlögun og fleiri orð í framstöðu orða til að æfa (algengt að börn eigi erfitt með framburð R- hljóðsins)
– Þrír gagnvirkir leikir í framhaldi af orðaæfingum þar sem myndir koma á víxl til frekari æfinga
– Hrós veitt reglulega í forritinu
– Upptaka leyfð á orðum og setningum til að æfa og hlusta
– Skráning nemenda: nafn, aldur, kyn og netfang
– Stigagjöf inni í forritinu
– Árangur sýndur í %
– Skráning athugasemda inni í forritinu
– Upplýsingar um stöðu og athugasemdir má senda í netpósti
– Hægt er að prenta út samantekt niðurstaða (air print)
– Vistun með dropbox

Við þökkum eftirtöldum stuðningsaðilum fyrir að stuðla að betri málþroska og læsi íslenskra barna:

Mennta- og menningarmálaráðuneytið og Barnamenningarsjóður styrktu íslenska útgáfu Lærum og leikum með hljóðin, í smáforrit fyrir iPad (2013).

Eftirtalin fyrirtæki gerðu aðlögun smáforritanna í símaútgáfu mögulega: Novator, Norðurál, Hagar, KPMG Íslandi og HS Orka (2015).

What’s New in Version 2.3

Enska smáforritið Kids Sound Lab var valið í lokaúrslit BETT 2016 undir smáforrit í MENNTUN. Það er ensk útgáfa af Lærum og leikum með hljóðin og byggir á sömu aðferðafræði til að kenna hljóðmyndun, orðaforða og undirbúa læsi.

Smelltu á flipa að ofan til að sækja smáforritið