Product Description
Segulstöngina köllum við gjarna töfrasprota því þegar barnið er búið að segja orðin og leggja segulpeninga ofan á myndirnar í bókunum í hvert skipti þegar orðið hefur verið borið rétt fram, sveipar segulstöngin öllum segulpeningunum upp eins og töfraspota hafi verið veifað!
Það er mjög vinsælt til að æfa hljóðin og spila með þessum hætti. Þá má setja bréfaklemmur á stöku myndirnar, setja þær á hvolf og veiða þær með töfrasprotanum. Barnið á þá að segja það orð sem það veiddi hverju sinni. Kenna má litina með marglitu segulpeningunum um leið og annað er æft.
Gætið þess að ung börn gleypi ekki litlu segulpeningana!
Segulsprotarnir fást í nokkrum litum. Takmarkað upplag.
Segulpeningarnir eru 100 stk í poka í mörgum litum, eða einum lit.
Sendu okkur línu ef þú hefur aðrar óskir varðandi litaval eða blandaða liti í poka á netfangið laerumogleikum@gmail.is. Við reynum eins og unnt er að koma til móts við óskir en úrval er takmarkað eins og sakir standa.
Segulsproti og 100 segulpeningar: verð: 3800 kr
Segulsproti: verð: 2000 kr
100 segulpeningar: verð 1800 kr