View Cart "Vinnusvunta Lærum og Leikum með Hljóðin (Blá)" was successfully added to your cart.
Out of stock

R bókin með A – 3 borðspilum 2 eintök til sölu

Kr.5.900

R – bókin er m.a. ætluð foreldrum, öfum, ömmum og kennurum sem vilja undirbúa og vinna markvisst með R hljóðið eftir leiðbeiningum höfundar sem talmeinafræðings með áratuga reynslu af þjálfun barna með frávik í hljóðmyndun og hljóðkerfi. Samhliða er unnið með þætti í hljóðkerfisvitund. ER NÚ EINGÖNGU TIL SEM HLUTI AF R FRAMBURÐARÖSKJUNNI. SJÁ HÉR
Foreldrar geta af öryggi fylgt efninu frá fyrstu blaðsíðu, þar sem þyngdarstigið eykst smám saman. Mikil áhersla er lögð á að fræða foreldra og kennara um mikilvægi staðsetningar tungunnar fyrir myndun íslenska R – hljóðsins og leita liðsinnis talmeinafræðings ef þörf krefur.

Out of stock

Product Description

R bókin er sjálfstætt framhald af ,,Lærum og leikum með hljóðin, undirbúningur fyrir hljóðmyndun og tal”. Eigum 2 eintök til sölu. Annars > EINGÖNGU TIL SEM HLUTI AF R FRAMBURÐARÖSKJUNNI. SJÁ:

Bókin er m.a. ætluð foreldrum, öfum, ömmum og kennurum sem vilja undirbúa og vinna markvisst með R hljóðið eftir leiðbeiningum höfundar sem talmeinafræðings með áratuga reynslu af þjálfun barna með frávik í hljóðmyndun og hljóðkerfi. Samhliða er unnið með þætti í hljóðkerfisvitund.
Foreldrar geta af öryggi fylgt efninu frá fyrstu blaðsíðu, þar sem þyngdarstigið eykst smám saman. Mikil áhersla er lögð á að fræða foreldra og kennara um mikilvægi staðsetningar tungunnar fyrir myndun íslenska R – hljóðsins og leita liðsinnis talmeinafræðings ef þörf krefur. Það getur verið mikilvægt að fá álit talmeinafræðings ef barn er óeðlilega lengi að ná tökum á R – hljóðinu og grunur leikur á óeðlileg frávik séu í hreyfingum tungu eða að tunguhaft sé til staðar. Mjög mikilvægt er að leita strax til talmeinafræðings ef barnið er farið að mynda R – hljóðið of aftarlega, eða ,,skrolla” hljóðið. Það á við um ung börn líka
Í bókinni er byrjað á að kynna hvernig má undirbúa rétta staðsetningu tungunnar fyrir R hljóðmyndun í ýmsum æfingum. Þegar hljóðinu er náð með aðstoð frú Tungu er leikið með hljóðið í R – bullorðum eða hljóðatengingum. Þá er farið í orð með R í byrjun orða í stöðugt lengri orð frá eitt, tvö, þrjú og fjögur atkvæði. Samkvæmt erfiðleikaþróuninni er hljóðið svo æft aftast í orðum, svo í miðju orða og í ýmsum R- samhljóðasamböndum.
Á síðustu blaðsíðum bókarinnar er leikið með rím, sögur og fleiri hljóðkerfisþætti.

Bókin er fallega myndskreytt af Höllu Sólveigu Þorgeirsdóttur og Búa Kristjánssyni. Myndirnar eru líflegar og henta öllum aldri.

A -3 spil fylgja með skemmtilegum leikjum.

Verð: 5900 kr
Aldur: 4 – 12 ára.

Meira:

Bókin er með gormum undir kili. Alls 32 innsíður á 250 gr. UPM pappír og kápa er 350 gr. UPM pappír. Bókin er með sérstakri lakkhúð til að þola álag lítilla fingra sem skoða aftur og aftur!

Prentun: Ísafoldarprentsmiðja 2010

Stuðningur: Þróunarsjóður námsgagna
Þá sýndu Margrétarsjóður Zontaklúbbs Reykjavíkur og Soroptomistaklúbbur Reykjavíkur verkefninu sérstaka velvild.