• Sorry, this product is unavailable.

R Framburðaraskja: Lærum og leikum með hljóðin: R bókin, allar myndir í tvöföldu setti, A -3 spil og leiðbeiningar

Kr.25.000

Framburðaraskjan inniheldur R – bókina, A -3 borðspil og allar myndirnar í bókinni í tvöföldu setti til að æfa orðin í ýmsum leikjum. Um er að ræða fleiri hundruð myndir. Allar táknmyndir fyrir hljóðin eru uppstækkaðar á sérspjöld svo hægt er að hafa þær vel sýnilegar fyrir börnin á meðan unnið er með viðeigandi hljóðapar hverju sinni. Þá fylgja leiðbeiningar og hugmyndir að notkun efnisins. Samvinna heimilis og skóla með bækur og myndaspjöld í markvissri samvinnu laðar fram hámarksárangur hverju sinni.

SKU: 7936 -1. Category: .

Product Description

R orðaspjöld 3 ATKVÆÐIR framburðaraskjanR - askjan inniheldur bók, myndaspjöld, A -3 borðspil og leiðbeininarÁprentuð taska úr bylgjupappa geymir R bókina, A -3 borðspil og allar myndirnar í bókinni í tvöföldu setti til að æfa orðin í ýmsum leikjum. Um er að ræða fleiri hundruð myndir. Allar táknmyndir fyrir hljóðin eru uppstækkaðar á sérspjöld svo hægt er að hafa þær vel sýnilegar fyrir börnin á meðan unnið er með viðeigandi hljóðapar hverju sinni. Þá fylgja leiðbeiningar og hugmyndir að notkun efnisins.
Framburðaröskjurnar njóta mikilla vinsælda hjá leik – og grunnskólum sem nýta efnið markvisst. Á leikskólum má m.a. nota efnið í framhaldi af Hljómprófun vegna hljóðkerfisþátta og í leik- og grunnskólum er kjörið að nota R – efnið í sérkennslu og talkennslu barna með framburðarfrávik, með börnum af erlendum uppruna og fyrir heyrnarskert börn.
Lagt er upp með að foreldrar fylgi stakri bók heima á sama tíma og skólinn vinnur með myndir í framburðaröskjunni í spilum og leikjum. Báðir aðilar reyna að vekja athygli á myndun hljóðsins og að laða hljóðin fram. Ávallt skal þó leita til talmeinafræðings ef grunur leikur á að barn nái ekki hljóðinu í sama takti og jafnaldrarnir. Þá getur verið mikilvægt að fá álit talmeinafræðings ef barn er óeðlilega lengi að ná tökum á R – hljóðinu og grunur leikur á óeðlileg frávik séu í hreyfingum tungu eða að tunguhaft sé til staðar. Mjög mikilvægt er að leita strax til talmeinafræðings ef barnið er farið að mynda R – hljóðið of aftarlega, eða ,,skrolla” hljóðið. Það á við um ung börn líka.
Þá hafa foreldrar keypt R – framburðaröskjuna og unnið heima í spilum og leik með börnum sínum, jafnvel í samstarfi við skóla eða talmeinafræðing barna sinna. Þannig má ná hámarksárangri eins og við á hverju sinni.
Halla Sólveig Þorgeirsdóttir og Búi Kristjánsson teikna skemmtilegar og grípandi myndir.
Verð: 25.000 kr sendingarkostnaður bætist við
Meira:
Prentsmiðjan Oddi prentaði 2010
Öll myndaspjöld eru á 350 g UPM pappír
Kassagerðin sá um hönnun og prentun umbúða/framburðaröskjunnar – harður eigulegur kassi
Stuðningur: Þróunarsjóður námsgagna
Þá sýndu Margrétarsjóður Zontaklúbbs Reykjavíkur og Soroptomistaklúbbur Reykjavíkur verkefninu sérstaka velvild.