Product Description
UPPSELT. Áprentuð taska úr bylgjupappa geymir grunnbókina og allar myndirnar í bókinni í tvöföldu setti til að æfa orðin í ýmsum leikjum. Um er að ræða fleiri hundruð myndir. Allar táknmyndir fyrir hljóðin eru uppstækkaðar á sérspjöld svo hægt er að hafa þær vel sýnilegar fyrir börnin á meðan unnið er með viðeigandi hljóð hverju sinni. Þá fylgja leiðbeiningar og hugmyndir að notkun efnisins.
Lagt er upp með að foreldrar fylgi stakri bók heima á sama tíma og skólinn vinnur með myndir í framburðaröskjunni í spilum og leikjum. Báðir aðilar reyna að vekja athygli á myndun hljóðsins og að laða hljóðin fram. Ávallt skal þó leita til talmeinafræðings ef grunur leikur á að barn nái ekki hljóðum í sama takti og jafnaldrarnir.
Þá hafa sumir foreldrar keypt framburðaröskjuna með grunnefninu og unnið heima í spilum og leik með börnum sínum, jafnvel í samstarfi við talmeinafræðing barna sinna. Þannig má ná hámarksárangri eins og við á hverju sinni.
Búi Kristjánsson teiknar skemmtilegar og grípandi myndir.
Verð: 22.500 kr Takmarkað upplag. Nokkur eintök eftir
Meira:
Prentun: Prentsmiðjan Oddi 2008
Kassagerðin sá um hönnun og prentun umbúða/framburðaröskjunnar, 2008
Stuðningur við útgáfu 2008: Barnavinafélagið Sumargjöf, Manngildissjóður Reykjanesbæjar, Heyrnar– talmeinastöð Íslands og Barnamenningarsjóður